Auglýsing

Um mig

  • Nafn: Daníel Tryggvi Daníelsson
  • Netfang: daniel.tryggvi@gmail.com
  • Heimilisfang: Skólatún 4
  • Hjúskaparstaða: Í sambandi

Dagur sólarinnar

28. nóvember 2007 klukkan 12:05
 Í dag er víst dagur sólarinnar, kannski ekki þeirrar gulu uppí á himnum eða jú reyndar hennar en kannski frekar þeirrar sem er kennd við SS eða öllu heldur SS Sól. Helgi Bjöss sagði í Ísland í dag í gær að núna æltuðu þeir í SSSól að reyna að koma smá sól inní hjörtu íslendinga í þessu svarta skammdegi. Get ekki alveg séð að það hafi tekist hjá þeim þar sem að það er eiginlega alveg alskýjað úti núna.

En þetta er engu að síður gott framtak hjá þeim félögum. Okkur veitir nú ekkert af smá glaðningi á þessum myrku, köldu dögum hérna í borg óttans. Það verður ekki mikill ótti í gangi á eftir, kannski meira bara svona óttablandin eftirvænting, þar sem að SSSól ætlar víst að vera með smá gleði hérna niðrá Austurvelli og er ég í svo góðri aðstöðu að vera með stúku sæti til að sjá þetta allt saman.

Mæli með að þeir sem eru orðnir þreyttir á að sitja bara inni og vilja fá smá yl og hlýju í kroppinn að þeir kíki á Austurvöll núna eftir hádegið, það verður alveg rokkna stuð.

Annars er það að frétta að ég er að fara í lunch með Níelsi núna eftir hálftíma og svo er planið að kíkja í pottinn með þeim félögum, Níelsi, Stebba og Kidda á morgun.

Mamma og pabbi fara svo út á föstudaginn að heimsækja Dagnýju og ég er bara að vona að nýji jeppinn verði kominn fyrir þann tíma svo að maður fái nú kannski aðeins að prufa hann á meðan gamli kallinn er í útlöndum ;)


Segir Daníel Tryggvi sem..... er ansi spenntur fyrir hugsanlegum ferðaplönum

Önnur góð helgi að baki

26. nóvember 2007 klukkan 10:47
 Það var svei mér þá að maður gerði mikið um helgina. Var í algjörum pabbaleik alla helgina. Byrjaði á því að kíkja aðeins í Kringluna eftir vinnu á föstudaginn þar sem að ég og Helga vorum að spá í að kaupa okkur nýjar pönnur í eldhúsið. Endaði að vísu með því að kaupa engar pönnur en keypti samt 2 jólagjafir. Eftir að þessum innkaupum lauk fór ég til Helgu og við elduðum (eða reyndar sá hún um alla eldamennskuna í þetta skiptið) gríðarlega gott Fahjitas (veit ekki hvernig á að skrifa þetta) og eyddum svo bara kvöldinu í að horfa á sjónvarpið. Voðalega kósí og notalegt. Það var reyndar ekkert svakalega mikill friður því að fyrr um kvöldið höfðum við gefið Björgvin Júlíusi nýjan síma, samlokusíma sem honum var búið að langa að fá í hart nær 2 ár, og svo að Bjarki Flóvent væri nú ekki útundan þá fékk hann alveg svaðalegan Transformers kall sem að getur skotið höndunum á sér og heyrast mikil óhljóð í og svona.

En hvað um það, föstudagurinn var allavegana mjög góður og skemmtilegur. Á laugardaginn kíkti ég til Helgu frekar snemma eða fyrir hádegi því að hún var búin að biðja mig um að hengja upp jólaseríu fyrir sig, það var nú minnsta mál í heimi, en serían var víst eitthvða sjúskuð þannig að Helga vildi ekki láta festa hana upp (Helga þú verður að vera duglegri um að biðja mig að hjálpa þér eitthvað svona heima við) ... en já ég gleymdi því að ég hafði víst keypt eitt stk sófaborð á leiðinni til Helgu og dunduðum við strákarnir okkur við það að setja það saman á meðan Helga var að læra. Svo þegar það var komið saman þá kom einhver vinur hans Bjarka Flóvents í heimsókn þannig að hann fór út að leika og ég og Björgvin Júlísu kíktum heima á Sogaveginn að horfa á Enska boltann (sé ekki fram á það að ég eigi eftir að bjóða honum aftur þar sem að mínir menn töpuðu fyrir Bolton af öllum liðum) en það var annars bara mjög fínt. Fórum svo og náðum í prufubílin sem ég var búinn að panta fyrir helgi. Er nefnilega farinn að spá í að fá mér nýjan bíl og talaði við þá hjá Ingvari Helgasyni um að fá lánaðann einn Nissan Qashqai yfir helgina svona til að sjá hvernig mér líkar að keyra bílinn dagsdaglega og verð ég að viðurkenna að þetta er bara hinn besti bíll. Þarf samt aðeins að skoða betur fjárhaginn áður en ég fjárfesti í svona tækik. En mæli samt hiklaust með þessum bíl. Eftir það fórum við út Álftanes þar sem að við náðum í Helgu og Bjarka Flóvent og skelltum okkur í Ikea þar sem að við versluðum 2 pönnur, kerti, diskamottur, skeiðar og svona eitthvað dótarí.

Harpa og Raggi kærastinn hennar kíktu svo til okkar um kvöldið og tókum við smá spil saman. Það er ekki frásögur færandi en Helga og Harpa unnu mig og Ragga í Partý&Co. En hvað um það, við leyfðum þeim náttúrlega að vinna af því að við erum svo mikilir herramenn ;)

Á sunnudaginn kíktum við stákarnir, DT, BJ og BF í BYKO til að kaupa nýja jólaseríu, erum við ekkert að grínast hvað þessi BYKO verslun þarna í Hafnarfirðinum er stór, en það endaði nú ekki vel þar sem að BJ tók eftir því þegar að við komum aftur út að einhver hafði keyrt utan í nýja fína bílinn sem ég var með í láni og far hægra afturhornið allt rispað og beyglað og ljósið brotið,
ég vill því biðja hvern þann sem var á bílastæðinu fyrir utan BYKO í Hafnarfirði milli kl 13:00 og 13:30 að hafa samband við mig (Daníel s. 820-2608) ef hann sá einhvern bíl rekast utan í gylltan Nissan Qashqai, gaurinn stakk nefnilega af og gæti farið svo að ég sitji upp með viðgerðina.

En hvað um það við létum ekki svona smámuni á okkur fá heldur héldum bara ótrauðir áfram í verslunarleiðangrinum. Skelltum okkur því næst í Europris þar sem að við versluðum eitt stk mottu undir nýja sófaborðið ekki nóg með það heldur fórum við svo líka í Kringluna þar sem að við fengum nýtt SIM-kort í símann hans Björgvin Júlíusar og komum svo við í Hagkaup þar sem að við keyptum sitthvað gott með kaffinu og eins og það hafi ekki verið nóg þá var Sprengjuhöllin einmitt að spila og árita nýju plötuna í Skífunni á sama tíma þannig að við hoppuðum þangað inn og hlustuðum á þá taka eitt gott lag áður en strákarnir fengu eiginhandaráritun hjá allri hljómsveitinni. Þannig að þetta var alveg heljarninnar mikið ævintýri.

Strákarnir kíktu svo aðeins í heimsókn til ömmu sinnar um kvöldið og fengum ég og Helga því smá tíma fyrir okkur. Kíktum heim til mín þar sem að við pöntuðum pizzu og höfðum það notalegt áður en við fórum aftur til Helgu, komum strákunum í rúmið og horðum svo aðeins á smá Fraiser áður en ég fór heim og Helga fór að sofa.

Þetta var því ansi viðburðamikil helgi og margt skemmtilegt brallað. Er strax farinn að hlakka til næstu helgi með Helgu :)

Skemmtileg helgi að baki

20. nóvember 2007 klukkan 09:47
 Það má nú svo sannarlega segja það að síðasta helgi hafi verið ansi skemmtileg, fór í 2 afmæli. Fyrst til Hörpu systur hennar Helgu á föstudaginn en hún verður 25 ára núna í des en þetta var besta tímasetningin á að halda uppá afmæli og svo skellti ég mér loksins í 30 ára afmælið hjá Sigga W sem varð nú engu að síður 30 fyrir mörgum mánuðum síðan en var loksins að halda uppá það núna.

Bæði afmælin voru alveg einstaklega skemmtileg, mikið sungið og trallað hjá Hörpu en meira svona spjallað og drukkið hjá Sigga. ÞAð var líka einstaklega skemmtilegt að hitta alla strákana aftur frá Bifröst, gerum alltof lítið af því að hittast svona enda allir orðnir voðalega merkilegir vinnandi menn ;)

Væri samt gaman að gera meira af þessu eins og við ræddum nú um þarna á laugardagskvöldið. Spurning hvort að ég taki mig ekki bara til og plani eitt stk partý heima hjá Gísla, ég hef víst orðið leyfi fyrir því eða leyfi og ekki leyfi það er spurningin.

Skrítið hvað hlutirnir raðast oft svona á sama tímann, þarna voru 2 afmæli á sömu helginni en svo veit ég ekki um neitt sem er að gerast núna alveg fram að áramótum. Þannig að ef einhver er að fara að halda uppá afmæli þá er þetta rétti tíminn því að ég er alveg laus :)

Ekki nóg með að það sé ekkert að gerast í skemmtanalífinu á næstunni heldur er ég líka allt í einu bara orðinn einn hérna í vinnunni. Magnús er að ég held bara ennþá að jafna sig á þessari New York ferð sem hann fór víst í núna um helgina og Jónas er bara stunginn af til Köben þar sem hann ætlar að mæta á samt rúmlega 1000 öðrum íslendingum að horfa á okkar menn gera í brækurnar enn einu sinni á móti frændum vorum Dönum.

Get nú ekki sagt annað en að mér líki það bara ágætlega að vera svona einn í vinnunni, þá fæ ég algjörlega að stjórna því hvenær og hvernig ég geri hlutina sem er mér nú eitthvað sem að mér mislíkar ekki get ég sagt ykkur :)

En fyrst að ég er orðinn minn eigin herra þá ætti ég kannski að fara að skipa sjálfum mér að hætta þessu bloggrausi og fara að koma mér að verki. Svona strákur dratttastu af stað að gera eitthvað annað en vera sífellt að blaðra eitthvað á þessu bloggi þínu.

kv, yfirmaðurinn

Bæjarins Bestu

14. nóvember 2007 klukkan 12:56
 Ég skellti mér á Bæjarins Bestu í annað skiptið í þessari viku. Get bara ekki fengið nóg af þessum pulsum (já Helga maður segir PULSUR en ekki pylsur) þær eru svo hrikalega góðar. Skil ekki hvað það er sem gerir þessar pulsur betri en aðrar. Hef heyrt margar sögur um það, setja Pilsner saman við vatnið sem pulsurnar eru soðnar í, hita brauðin yfir gufu þannig að þau séu akkúrat nógu mjúk og fín og allskonar svona sögur. Veit ekki hvað er satt og rétt í þessum efnum en það sem er satt er að pulsurnar þarna eru alltaf alveg fáránlega góðar.

Ekki skrítið að heimsfrægir einstaklingar eins og Bill Clinton og Metalica kjósi að kíkja við þarna og fá sér eina pullu þegar þeir eru hér á landi. Mæli með því að þú kæri lesandi kíkir þarna við næst þegar að þú átt leið í miðbæinn og skellir þér á eina góða pullu.

Tvífarar

12. nóvember 2007 klukkan 18:49
             
Avram Grant         og              Svarthöfði

Þeir eru alveg nákvæmlega eins !!!

sígarettu óbjóður

12. nóvember 2007 klukkan 13:07
 Ég skellti mér úti Bæjarins Bestu núna áðan að ná mér í 2 stk pulsur í svanginn. Það væri svo sem ekki frásögur færandi nema fyrir það að ég hitti Davíð Már Bjarnason og sjálfan Don Svan þar sem að þeir voru einnig að gæða sér á þessum ljúfenga rétti. En það er samt ekki tilgangur þessa bloggs eins og fyrirsögnin gefur til kynna.

Tilgangur þessa bloggs er að kvarta yfir því hversu ógeðslega reykingafólk gengur um eftir sig. Ég er að vinna hérna í gamla Landsímahúsinu sem er nú reyndar næstum bara orðið LandsBANKA húsið núna. En hvað um það..... hérna fyrir utan húsið er allt morandi í sígarettustubbum, ég er alls ekki að segja að það sé bara starfsfólk Landsbankans sem að gengur svona um heldur bara allir þeir sem reykja í þessari byggingu. Mér finnst þetta vera bara til háborinnar skammar. Er virkilega ekki hægt að gera neitt annað við sígarettuna heldur en að henda henni í jörðina og drepa á henni þannig.

Reykingafólk farið að læra að ganga sómasamlega um borgina okkar ógeðin ykkar !!

Veikindi

08. nóvember 2007 klukkan 11:39
 Það hlaut að koma að því, miðað við hvað það er búið að vera mikið af veiku fólki í kringum mig, að ég yrði sjalfur veikur. Sú staða kom víst upp í gær. Þurfti meira að segja að fara veikur heim úr vinnunni og ligg bara núna uppí rúmi með hósta, stíflað nef, beinverki og almenna vanlíðan.

En sem betur fer náði þessi flensa ekki tökunum á mér fyrir Innkauparáðstefnuna sem var á þriðjudaginn. Það hefði ekki verið nóg gott ef ég hefði misst af henni. Ég held að svona á heildina litið hafi þetta gengið bara ágætlega hjá okkur að kynna þetta nýja verkefæri fyrir fólki. Við köllum þetta verkfæri því að fólk getur notað þetta til að auðvelda sér innkaup og hagrætt sínum rekstri til muna. Ætlaði nú ekkert mikið að fjalla um þessa ráðstefnu. Hún er búin, gekk þokkalega, meira er nú ekki um það að segja.

Núna er bara næst á dagskrá að ná sér af þessum veikindum og líta svo björtum augum fram í tímann og njóta þess sem koma skal.

fotbolti.net

02. nóvember 2007 klukkan 15:57

Það er naumast að kallinn er orðinn frægur. Bara farið að birta myndir af manni inná fotbolti.net


Þið getið séð meira um þetta á slóðinni hérna fyrir neðan.

http://fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=54275

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Á döfinni

Innskráningar kubbur

Leit