Bara fáránlegt
29. apríl 2008 klukkan 09:47
Ég var að lesa mbl.is í morgun og rakst þar á tvær fréttir sem að sýna það að þetta bensín dæmi er bara alveg útí Hróa Hött.
Kíkið aðeins á þessa FRÉTT
og lesið svo þessa hérna FRÉTT
Þetta eru raunverulegar fréttir sem að birtust sama daginn í sama blaðinu. Eins og ég segi bara fárárnlegt !!
Hver er eiginlega að maka krókinn af þessum hækkunum alla tíð. Held að það sjái það hver heilvita maður að það er allavegana ekki almenningur sem er að græða á þessu.
Kíkið aðeins á þessa FRÉTT
og lesið svo þessa hérna FRÉTT
Þetta eru raunverulegar fréttir sem að birtust sama daginn í sama blaðinu. Eins og ég segi bara fárárnlegt !!
Hver er eiginlega að maka krókinn af þessum hækkunum alla tíð. Held að það sjái það hver heilvita maður að það er allavegana ekki almenningur sem er að græða á þessu.
Segir Daníel Tryggvi sem.... er búinn að fá sig fullsaddan af þessum bensínhækkunum
Hvað er að gerast á Íslandi í dag
23. apríl 2008 klukkan 14:03
Þar sem að ég hef verið veikur heima í morgun er ég búinn að ná að fylgjast ansi vel með þessum mótmælaaðgerðum vörubílstjóra á Suðurlandsveginum í morgun. Lögreglan hefur gengið ansi hart fram, mun harðar heldur en hún hefur áður gert, og virðist lögreglan ekkert ætla að hörfa. Þeir hafa beitt kylfum, skyldum og piparúða (maze) og hafa víst milli 10-15 mómælendur verið handteknir.Þetta eru einhver viðamestu mótmæli sem lögreglan hefur þurft að taka á núna í fjöldamörg ár. Fyrir mitt leiti þá finnst mér lögrelgan vera að höndla þetta alveg kolrangt. Með því að vera þarna í sínum óeirðabúnaði þá eru þeir einungis að ögra þeim sem að eru þarna að mótmæla. Það er leiðinlegt að svona þurfi að fara í þessum annars ágætu mótmælaaðgerðum þessara blessuðu vörubílstjóra.
Verð þó að viðurkenna að mér fannst eins og samkenndin með þessum sífelldu mótmælum hjá þessum ágætu mönnum væri að minnka töluvert í samfélaginu en ég er nokkuð viss að með þessu harðræði lögrelgunar hafi mótmælendurnir unnið sér inn töluverða samkennd í þjóðfélaginu.
Núna rétt í þessu voru vörubílstjórar að sturtu hluta úr hlassi á vegin við Norðlingaholt svona meira til að sýna hvað gæti gerst en þeir hafa víst hótað því að gera þetta og loka vegum með þessum hætti í staðinn fyrir að leggja bílum sínum á vegina.
En þetta er alveg stórmerkilegt mál og eflaust hefur hver sína skoðun á því. Ég verð að viðurkenna að ég hef aldrei séð annað eins harðræði af hálfu lögrelgunnar hér á landi og hélt ég að slíkt sæist einungis í bíómyndum eða í fasistas/einræðisstjórnum í löndum á borð við Kína og Suður-Kóreu.
Nú er bara að vona að þetta leystist farsællega og fólk geti farið að einbeita sér að einhverju uppbyggilegra heldur en svona vitleysu.
Segir Daníel Tryggvi sem.... skilur ekki hvað maze-lögreglumennirnir voru að öskra
Skrítinn drengur
22. apríl 2008 klukkan 11:34
Það verður ekki af honum tekið að hann Bjarki Flóvent veit hvað hann vill. Það er kannski skrítið að mér finnist hann skrítinn en þannig er það bara. Við vorum að fara að fá okkur að borða í gær en sökum þreytu þá nentum hvorki ég né Helga að elda og ákváðum við því bara að notast við vini okkar á Domino´s og pöntuðum okkur svona tvennutilboð. Allt gott og blessað með það.En ég var víst fyrr um daginn búinn að lofa Bjarka Flóvent að við ætluðum að hafa soðna ýsu í matinn. Þegar hann svo kom heim og sá að það var bara búið að panta pizzu þá var hann nú aldeilis ekki kátur. Það mátti alveg heyra svona ekka hljóð í hálsinum á honum þegar að hann spurðu hvort hann mætti ekki fá fisk í staðin fyrir pizzu.
Þó svo að mér finnist þetta skrítið þá er það eins og ég sagði áðan eflaust skrítnara að mér sé farið að finnast þetta skrítið. Því í gamla daga og já reyndar bara þegar að ég var að alast um þá var fiskur mun algengari á matseðlunum heldur en pöntuð pizza. Ég er þó engu að síður mjög ánægður með litla kútinn að vilja frekar fisk heldur en pizzu og vonandi bara að það haldist sem lengst þannig. Ég ætla alls ekki (þó svo að mér persónulega finnist pizza bragðbetri en fiskur) að fara að draga úr þessu og reyna eitthvað að ota pizzu að honum ef honum finnst fiskurinn betri.
En engu að síður fannst mér þetta svolítið skrítið, það er samt bara gott.
Segir Daníel Tryggvi sem.... er á leiðinni í pottinn á þriðjudegi
Ekki mikið
21. apríl 2008 klukkan 21:38
Ég vakna um 8 leitið, fæ mér að borða, fer í vinnunna, kem heim um 5-6 leitið, vesenast eitthvað með strákunum, við borðum kvöldmat, horfum smá á sjónvarpið, strákarnir þurfa að læra og eitthvað, vesen að koma þeim í háttinn og ég og Helga erum svo bara þreytt fyrir framan sjónvarpið í smástund áður en við förum sjálf að sofa.
Þetta er lífið hjá okkur þessa dagana auðvitað með smávægilegum breytingum svona af og til.
Hlakka mikið til þegar að litlan verður fædd því að þá kemur einhver smá breyting á þetta mynstur þó svo að ég eigi alveg vona á því að það verði alls ekkert auðveldara, þvert á móti verður það örugglega bara erfiðara en þá er bara að takast á við það. Held líka bara að þetta verði ansi skemmtileg áskorun ef svo má að orði komast og held ég að við Helga eigum eftir að standa okkur bara asskoti vel þó svo að ég segi sjálfur frá :)
Segir Daníel Tryggvi sem..... finnst Ívar mjög skemmtilegur drengur ;)
Körfuboltafílingur
18. apríl 2008 klukkan 11:25
Ég veit ekki hvað það er, hvort það að skoða þetta statistic kerfi sem KKÍ er með, það að úrslitakeppnin í NBA sé að byrja eða að mínir menn í Keflavík séu komnir í úrslit í körfunni hérna heima, en ég er allavegana í alveg svaðalegum körfuboltafíling þessa dagana. Til marks um það þá skellti ég mér í Smáralindina í gær og fjárfesti í einu stykki körfubolta. Á að vísu eftir að purfa gripinn en þar sem að ég er með þennan fína körfauboltavöll bara í bakgarðinu hjá mér þá er ég að spá í að skella mér bara í betri skónna og trítla útá völl núna eftir vinnu. Verður spennandi að sjá hvort að strákurinn hafi ennþá sömu snerpuna og stökkkraftinn og í gamla daga (efast það stórlega).
Engu að síður þá verður gaman að fara aðeina að hreyfa sig og er svo takmarkið líka að kaupa sér kort í ræktina uppí íþróttahúsi, það gegnur ekki að sitja svona á rassgatinu allan daginn og koma svo bara heim og gera ekki neitt þar heldur.
Segir Daníel Tryggvi sem....er ósáttur með bæði Everton og Fram sem töpuðu bæði í gær
Fáránlega flott kerfi
17. apríl 2008 klukkan 09:53
Ég var rétt í þessu að sjá stigaskráningarkerfið sem að KKÍ notar og get ég ekki annað sagt en að það sé það langtflottasta sem ég hef nokkurt tíma séð. Þar er hægt að skoða allt, hverjir skoruðu mest, hvaða var skotið, flestar stoðsendingar ofl ofl.
Mæli eindregið með að þið tékkið á þessu
Hérna er linkurinn á statisticina frá leik Keflavíkur og ÍR frá því í gær. Keflavík vs ÍR
Mæli eindregið með að þið tékkið á þessu
Hérna er linkurinn á statisticina frá leik Keflavíkur og ÍR frá því í gær. Keflavík vs ÍR
Segir Daníel Tryggvi sem... er bara orðlaus yfir hversu nett þetta system er
Smá prentvilla
17. apríl 2008 klukkan 09:36
Ég kíkti uppí keiluhöll í gær af því að ég þurfti að ná í hana Helgu þar sem að hún var með flokkinn sem hún er að þjálfa í keilu. Það væri svo sem ekki frásögur færandi nema fyrir þær sakir að ég þurfti að bíða eftir henni í smástund og á meðan ákvað ég að prufa hvort það væri ekki eitthvað gott að éta á veitingastaðnum sem er þarna við hliðina á Keiluhöllinni.
Pantaði mér Mozzarella stangir með vöfflufrönskum sem brögðuðust alveg prýðilega en það skemmtilega við þetta allt saman var samt sjálfur matseðillinn. Ég ætla að leyfa ykkur að spreyta ykkur á því hvort þið sjáið villuna.

Hvernig er þetta eiginlega hægt ??? Láta menn ekkert lesa svona hluti yfir áður en þeir láta prenta fyrir sig fleiri tugi matseðla ???
En hverju sem því nú líður þá fannst mér þetta bara mjög svo upplífgandi, þannig að kannski var þetta bara með vilja gert.
Pantaði mér Mozzarella stangir með vöfflufrönskum sem brögðuðust alveg prýðilega en það skemmtilega við þetta allt saman var samt sjálfur matseðillinn. Ég ætla að leyfa ykkur að spreyta ykkur á því hvort þið sjáið villuna.

Hvernig er þetta eiginlega hægt ??? Láta menn ekkert lesa svona hluti yfir áður en þeir láta prenta fyrir sig fleiri tugi matseðla ???
En hverju sem því nú líður þá fannst mér þetta bara mjög svo upplífgandi, þannig að kannski var þetta bara með vilja gert.
Segir Daníel Tryggvi sem.... var bara mjög ánægður með ráðstefnuna í gær
Stéttaskipting
14. apríl 2008 klukkan 14:06
Núna rétt í þessu sá ég eitt skýrasta dæmið um það hversu mikil stéttaskipting er orðin í íslensku þjóðfélagi. Ég var að rölta aftur í vinnuna eftir að hafa fengið mér ljúfengan kebab á Kebab húsinu og hvað haldiði að ég sjái þarna á leiðinni. Ég sá róna sem var klárlega alveg ofurölvi, standandi uppp við tré að míga á gangstéttina. Við erum að tala um að þetta sá ég á mánudegi um hábjartan dag á miðu Ingolfstorgi. En það sem sýndi mér hversu mikil stéttaskiptingin er orðin hérna er að hinu megin við tréð sem að grey maðurinn var að létta af sér á var hvorki meira né minna en einhver 20 milljón króna Mercedes Benz bifreið.Hversu mikil er munurinn orðinn á mönnum þegar að hlið við hlið standa nú menn sem eru ofurölvi úti á miðri götu um hábjartan dag, mígandi utan í tré og menn sem keyra um á 20 milljón króna bílum.
Mér varð eiginlega bara hálfbrugðið þegar að ég sá þetta. Ekki það að ég sjái ekki þessa róna á hverjum degi. Þeir eru sífellt hangandi hérna í kringum húsið því verr og miður, en það að sjá svona skýr merki um það hversu lágt sumir menn eru komnir á meðan aðrir hreinlega fljúga um í skýjunum.
En svona er víst Ísland í dag
Segir Daníel Tryggvi sem.... reiknar með að hann sé einhver staðar þarna mitt á milli þessara tveggja fyrrnefndu manna
Skemmtilegur hrekkur
11. apríl 2008 klukkan 09:52
Ég var að lesa Fréttablaðið í morgun og inní því er annað blað sem heitir víst Sirkus. Ég mæli með að þið kíkið á það blað frá því í dag því að þar er að finna grein, á bls 14, um hana Ágústu Evu Erlendsdóttur betur þekkt sem Silvía Nótt. Þarna er hún beðin að telja upp topp 10 hluti sem hún gæti ekki verið án eða eitthvað því um líkt.Það vakti kátínu mína þegar að ég fór að skoða þetta aðeins nánar og sá ég að hún segir að söngvamyndir séu svo hressandi en ef betur er að gáð má sjá að myndin sem um ræðir er í raun myndin Pirates dýrasta klámmynd sem hefur verið gerð.
Veit ekki hvort þetta er hrekkur af hálfu Ágústu, þeirra hjá Sirkus eða hvort hún hafi bara talið upp þá 10 hluti sem hún tók fyrst eftir í íbúðinni sinni eða hvað. En engu að síður fannst mér þetta mjög svo kátlegt.
Endilega tékkið á þessu :)
Segir Daníel Tryggvi sem... á ekki né hefur séð umrædda mynd
Auðveldur sigur og sól skín í heiði
10. apríl 2008 klukkan 14:52
Þetta var nú óþarfa hræðsla í mér fyrir leikinn í gær því að mínir menn léku eins og herforingjar og áttu Rómar menn engin svör við okkar leik. Þó svo að einungis eitt mark hafi verið skorað þá var leikurinn aldrei í hættu og eftir að Tevez náði loksins að nýta eina af þeim fjöldamörgu fyrirgjöfum sem að meistari Hargreaves gaf fyrir, þá var þetta í raun bara bið eftir lokaflautinu hjá dómaranum.Eflaust hefði leikurinn orðið meira spennandi ef að Rómverjar hefðu náð að nýta þessa vítaspyrnu sem að þeir fengu en það er svona þegar að menn nýta ekki færin, þau gerast nú ekki öllu betri heldur en víti, þá eiga menn bara ekkert skilið að vinna. Það var líka engu líkara en að Rómar menn hefðu hreinlega enga trú á að þeir gætu breytt úrslitunum frá því fyrri leiknum og það var meira eins og að þeir væru bara að reyna að koma í veg fyrir að fá aftur á sig álíka útreið og þeir fengu síðast þegar að þeir komu í heimsókn á Old Trafford.
En nóg um það. Ég er farinn að átta mig á því af hverju skrifstofurnar sem að við erum í hérna í gamla Landsímahúsinu voru auðar og stóðu okkur til boða. Það er nefnilega alveg sjúklega heitt hérna inni þegar að sólin skín svona á gluggann hjá okkur. Þó svo að allir gluggar í húsinu séu opnir þá virðist það ekki nærri því duga til að ná að kæla herbergin niður. En ég ætla nú ekki að fara að bölva sólinn því það er aftur á móti líka alltaf dásamlegt að koma út eftir langan vinnudag og rölta í gegnum miðbæinn og meðfram tjörninni í sólskininu.
Bara spurning hvort að sólin mætti ekki taka sér smá pásu svona rétt yfir miðjan daginn og koma svo aftur svona uppúr 4 leitinu.
Segir Daníel Tryggvi sem....á von á að verða ágætlega tanaður í sumar eftir allar þessar pottaferðir
Meistaradeildin
09. apríl 2008 klukkan 14:08
Í kvöld fer seinni leikurinn fram á milli Man Utd og Roma í 8-liða úrslitum meistaradeildarinnar. Eins og flestir vita þá vann United fyrri leikinn 0-2 í Róm og því í nokkuð góðri stöðu fyrir leikinn í kvöld. Engu að síður er það skarð fyrir skyldi að einn okkar besti maður á tímabilinu, Nemanja Vidic, verður ekki með í kvöld sökum meiðsla. Það er því ekkert öruggt með úrslitin í kvöld, við sáum nú hvernig liðið spilaði, eða öllu heldur vörnin, núna um síðustu helgi á móti Boro. Það stóð hreinlega ekki steinn fyrir steini í vörninni og greinilegt hversu mikilvægur hlekkur hann Vidic er í vörn okkar United manna.En eins og segir í kvæðinu þá kemur maður í manns stað en ég vona engu að síður að sá maður verði ekki John O´Shea því hann var ekki að standa sig á móti Boro. Einnig er það spurningamerki hvort að Rio Ferdinand verði með en hann á víst við einhver smávægileg meiðsli að stríða og varð einmitt að fara útaf í umræddum Boro leik.
Hverju sem því nú liður þá er ég bara nokkuð bjartsýnn á þennan leik og vona bara að mínir menn sýni á sér sparihliðarnar eins og þeir gerði í fyrra á móti Roma. Væri ekki leiðinlegt að sjá aftur tölur eins og 7-1
Segir Daníel Tryggvi sem....var að búa til afmælisboðskort fyrir Bjarka Flóvent
Hlutirnir að róast
08. apríl 2008 klukkan 14:55
Nú eru hlutirnir aðeins farnir að róast eftir öll lætin í kringum flutningana í síðustu viku. Heimilið er farið að taka á sig alveg þokkalega mynd og ekki nóg með það heldur héldum við okkar fyrsta matarboð núna um helgina. Við vildum nefnilega þakka mömmu og pabba fyrir alla hjálpina sem þau eru búin að veita okkur í þessum flutningum. Við ákváðum því að bjóða þeim í mat á föstudaginn en bara með því skilyrði að þau væru tilbúin að vinna aðeins fyrir matnum :) mamma kom nefnilega fyrr um daginn og lakkaði sjónvarpsborðið fyrir okkur og pabbi mætti svo með höggborvélina um kvöldið til að "hjálpa" mér að hengja upp spegilinn í stofuna. Þetta gekk allt eins og í sögu og fengu þau hjón því að gæða sér á dýrindis hunangssinnepskjúkling um kvöld og að sjálfsögðu rautt og hvítt með því. Helgin fór annars bara í rólegheit og hálfgerða afslöppun, strákarnir voru nefnilega hjá pabba sínum ;)
Ég og Helga nýttum færið og skeltum okkur bara út að borða á laugardeginum og fórum svo að sjá In Bruges í Regnboganum um kvöldið. Mæli alveg eindregið með þeirri mynd, þeir sem hafa gaman af svolítið svörtum húmor þá er þetta bara skilduáhorf fyrir þá aðila.
Núna síðustu daga hef ég svo verið að skoða ansi mikið af ljósum og ryksugum því það er svona það sem að mig langar til að kaupa næst. Að vísu er ég að fara núna á eftir að kaupa skrifborð og stól handa litla pottorminum honum Bjarka Flóvent. Fundum nefnilega alveg helvíti góðan díl á barnalandi og ákvaðum bara að skella okkur á hann. Ég verð nú samt alveg að viðurkenna að það er eins gott að þessu kaupæði fari að ljúka flótlega áður en ég set fjölskylduna hreinlega á hausinn.
Annað hvort það eða þá að ég verði bara að biðja um launahækkun.
Segir Daníel Tryggvi sem.... var að klára að fylla út umsóknina fyrir fæðingarorlof
Myndir frá flutningunum
04. apríl 2008 klukkan 13:35
Var að enda við að henda inn fullt af myndum frá flutningunum. Endilega kíkið á þær ef þið viljið. Svo væri líka allt í lagi ef þið kommentuðuð ef þið kíkið á þetta svo að ég geti vitað hvort að það sé einhver að skoða þessar myndir sem ég er alltaf að taka.
En hérna eru allavegana myndirnar: Flutningar
En hérna eru allavegana myndirnar: Flutningar
Segir Daníel Tryggvi sem.... er að fara að bjóða gamla settinu í mat í kvöld
Lok lok og læs....
03. apríl 2008 klukkan 13:49
Það er greinilegt að þessum mótmælaaðgerðum atvinnubílstjóra á ekkert að fara að ljúka. Þeir loka hverjum veginum á fætur öðrum og nú er þetta meira að segja orðið svo slæmt að lögreglan er farin að herma eftir þeim.Lögreglan lokaði í morgun og er ennþá með lokað, alla vegi sem liggja að Alþingishúsinu. Það var víst einhver orðrómur uppi um það að þessir atvinnubílstjórar hyggðust mæta með bílhlass af möld eða þaðan af verra og sturta því við dyrnar á alþingishúsinu. Einnig hafði ég heyrt þann orðróm að þeir hefðu í hyggju að mæta með skítadreifara og sprauta bara á sjálft Alþingi. Það hefði nú heldur betur hleypt fjöri í leikinn :)
En eins og er þá er bara allt lok lok og læs og verður þannig eitthvað fram eftir degi.
Segir Daníel Tryggvi sem... prísar sig sælan að hafa ekki ennþá lent í þessum mótmælaaðgerðum atvinnubílstjóra
Kominn með netið
02. apríl 2008 klukkan 19:54
Þá erum við komin með netið hingað í Skólatún 4. Ég sit hérna í nýja stólnum saddur og sæll eftir að hafa borðað dýrindis pítur sem að Helga eldaði og svo fengum við okkur einhverja mjög ljúfenga köku í eftirrétt.Það er því heldur betur allt gott að frétta héðan af Álftanesinu. Ég skellti mér útí Bessa í gær, Bessi er sem sagt hverfispöbinn hérna á Álftanesinu, og horfði þar á Man Utd vinna Roma. Asskoti fínt að hafa svona pöbb bara alveg við hliðina á íbúðinni okkar. Bara 5 mín að rölta þangað yfir og hef ég tvisvar horft á Man Utd þarna og þeir hafa unnið í bæði skiptin, þannig að ég er nokkuð viss um að það sé mikið happamerki að horfa á leiki þarna :)
Í kvöld á svo að halda áfram að taka uppúr kössum og reyna að klára það eins og best getur.
Segir Daníel Tryggvi sem.... er bara helvíti ánægður með nýju íbúðina
Fluttur í Skólatún 4
01. apríl 2008 klukkan 12:21
Það tók ekki langan tíma að flytja. Smalaði saman smá liði á laugardaginn og vorum við bara tæpa 2 tíma að henda öll draslinu yfir, sófanum, skenknum, ísskápnum, þvottavélinni og öllu þessu dóti. Ég vill fá að þakka öllum þeim sem að lögðu hönd á plóginn við flutningana, Maríu mömmu hennar Helgu, Óla Stefán bróður hennar Helgu og Hörpu systur hennar, Bigga mági, Kidda Jó og síðasta en ekki síst foreldrum mínum. Án hjálpar frá öllu þessu góða fólki þá hefðum við aldrei náð að gera þetta á svona stuttum tíma.Ekki nóg með það að flutningarnir hafi tekið stuttan tíma heldur er líka búið að setja mest allt af nýja dótinu saman og allt farið að virka s.s eins og uppþvottavélin og þurrkarinn, nýja borðstofuborðið og stólarnir og ýmislegt fleiri. Það er meira að segja búið að setja upp gardínur á nokkrum stöðum og er það einna helst mömmu og pabba að þakka. Pabbi kom meira að segja aftur í gærkvöldi til að klára að setja upp eina rúllugardínu inni hjá Björgvin Júlíusi þannig að það eru bara allir í skýjunum með nýju íbúðina.
Ekki eins og þetta sé ekki nóg heldur er ég líka búinn að kaupa Stöð 2 svo að núna getur hún Helga mín bara slakað á heima og horfa á Oprah, Extream Makeover: Home Edition og eitthvað svona dót. Spurning hvort að maður fari svo líka að kaupa Moggann ;)
Segir Daníel Tryggvi sem.... finnst myndin hér að ofan vera mjög lýsandi fyrir það hvernig flutningarnir gengu fyrir sig
