Auglýsing

Um mig

  • Nafn: Daníel Tryggvi Daníelsson
  • Netfang: daniel.tryggvi@gmail.com
  • Heimilisfang: Skólatún 4
  • Hjúskaparstaða: Í sambandi

Fæðingarsaga - Séð frá sjónarhóli óreynds föðurs

27. maí 2008 klukkan 22:46
Það er heldur betur að hlutirnir hafa breyst á skömmum tíma. Fyrir um það bil ein og hálfu ári síðan var ég bara einhleypur ungur foli að basla við það að klára BS-inn í viðskiptafræðinni. Nýkominn heim frá Tékklandi og ansi blautur á bak við eyrun þegar kemur að málefnum hjartans.

Núna einu og hálfu ári síðar er ég orðinn viðskiptafræðingur, sambýlismaður, stúppabbi tveggja yndislegra stráklinga, verkefnastjóri og síðast en alls ekki sýst faðir.

Þetta eru svo sannarlega breytingar sem að enginn getur undirbúið sig fyrir og ekki er til neinn skóli sem kennir manni að takast á við þessi margvíslegu verkefni sem að fylgja þessum breytingum, en allt er breytingum háð og þar er lífið svo sannarlega engin undantekning. Allt fram streymir endalaust og get ég svo sannarlega sagt það að ég er mun glaðari, lífsfyllri og ánægðari í dag heldur en ég var fyrir einu og hálfu ári síðan og þá var ég nú samt alls ekkert fúll.

En þetta átti víst að vera fæðingarsaga en ekki eitthvað svona raus um hitt og þetta.

Eins og flestir hafa víst getið sér til um þá varð ég pabbi í fyrsta skipti núna um síðastliðna helgi nánar tiltekið kl. 05:54 á sunnudagsmorgun.

Allt hófst þetta þó með því að við hjónin fengum hana systur mína, Bigga manninn hennar og Silju og Rökkva í heimsókn til okkar á laugardagskvöldið til að horfa á Eurovision. Það var aldeilis skemmtilegt kvöld og mikið hlegið og skemmt sér en æsingurinn átti heldur betur eftir að verða meiri. Það er líka gaman að segja frá því að Sigrún systir átti einmitt afmæli þetta kvöld og þó svo að sú litla hafi fæðst hinu megin við miðnættið þá held ég að Sigrún geti nú samt sagt að hún hafi fengið þá stuttu í afmælisgjöf.

En eins og áður segir þá var allt þetta lið hérna hjá okkur á laugardaginn og eftir að það fór þá fóru nú leikar heldur betur að æsast. Rétt um miðnættið eða þegar að ég ætlaði mér að fara að skríða uppí þá tjáði Helga mér að nú væri væntanlega eitthvað að fara að gerast, svo miklir væru verkirnir orðnir. Ég get alveg sagt ykkur það að þegar að Helga kveinkar sér yfir verkjum þá er eins gott að líta upp og taka eftir, því hún var búin að vera með hríðaverki í að vera mánuð áður en sú litla fæddist þannig að hún var orðin ansi vön því að finna til. En sem sagt þarna um miðnættið fór allt að gerast. Helga ákvað þá að skella sér í bað til að reyna að slaka aðeins á og lina verkina því ekki mátti hún taka inn nein verkjalyf. Þegar þarna var komið við sögu þá sá ég fram á það að við værum að fara uppá fæðingardeild um miðja nótt og þá voru nú góð ráð dýr því allir þeir aðilar sem við höfðum hugsað okkur að gætu passað strákana, ef svo færi að við þyrftum að rjúka uppá fæðingardeild um miðja nótt, voru vant við látnir. Mamma hennar Helgu var á sinni síðustu vakt áður en hún færi í sumarfrí, Harpa systir hennar Helgu var eins og helmingur allra landsmanna í Eurovision party, hún var reyndar ekki sú eina því að foreldrar mínir voru líka í Eurovision party, bróðir hennar helgu var að fara að keppa daginn eftir og vildi hún því ekki fara að halda honum vakandi alla nóttina, systir mín þurfti að vakna snemma til að fara að ná í einhverja útlendinga út á flugvöll og hin systir mín býr eins og kunnugt er útí Danmörku.

Þið sjáið þá að hún ætlaði svo sannarlega að láta hafa fyrir sér þessi litla prinsessa. Ekki einu sinni komin í heimin en strax farin að koma foreldrum sínum í klandur. Það rættist þó úr þessi þar sem að foreldar mínir létu skutla sér út Eurovision partýinu sem þau voru í, sem var by the way útí Keflavík, og beint hingað út á Álftanes þar sem að þau svo gistu og sáu um strákana þangað til að við komum heim.

Þetta átti sér stað um klukkan 2 um nótt og vorum við því mætt uppá fæðingardeild um það leiti. Helga var orðin ansi kvalin á þegar þarna var komið við sögu. Það kom því ekki á óvart að þegar að ljósan skoðaði hana að hún væri komin heila 5 sentimetra í útvíkkun. Ég varð samt nokkuð smeikur þegar að Helga tjáði mér að þetta myndi þá taka væntanlega svona 5 klukkutíma í viðbót þar sem að hver cm í útvíkkun tæki að jafnaði svona um 1 klst. Það leit því allt út fyrir langa og stranga nótt en annað kom á daginn því sú litla var greinilega orðin ansi pirruð á þessu hangsi og vildi bara koma út 3 tímum síðar eða rétt fyrir 6 um morguninn.

Ég held að orð fái því vart líst að sjá sitt eigið afkvæmi koma í heiminn en ég ætla samt sem áður að reyna. Þetta var alveg ótrúlega dásamlegt en jafnframt held ég að ég hafi aldrei verið eins hræddur á ævinni. Þegar þetta litla kríli hreinlega plompaði útúr Helgu og var gjörsamlega líflaust og grátt og og mjög svo ógnvænlegt útlit þá fékk ég sting fyrir hjartað, hugsanirnar sem að þutu í gegnum höfuðið á mér eru einhverjar þær skelfilegustu sem ég hef nokkurn tíman hugsað. Það að sjá barnið mitt, frumburðinni liggja þarna í blóðpolli gjörsamlega líflaust án vafa sú skelfilegast sjón sem ég hef augum litið. Á einhvern hátt tókst mér þó að klippa á naflastrenginn og ljósmóðirin hreinlega skutlaðist með litla angann yfir á skiptiborðið og setti hana undir hitalampa, strauk henni um allt, nuddaði hana aðeins til og viti menn allt í einu brast litla krílið við snertingunni og byrjaði að háorga. Ég get sagt ykkur að aldrei ALDREI hef ég orðið jafnglaður yfir því að heyra barnsgrát, hún var líka ekki sú eina sem að grét þarna því að ég grét líka eins og lítið barn. Grét gleðitárum yfir því að sjá litla barnið mitt hreinlega sjúga í sig lífið og gefa foreldrum sínum bestu gjöf sem að nokkuð barn getur gefið, sig sjálft.

Aldrei hafði ég hugsað útí það hvernig mér myndi líða þegar að ég væri orðinn pabbi, faðir, ég áttaði mig svo sem á því að ég væri að eignast dóttur en ég hafði lítið pælt í því að hún væri að eignast mig sem pabba.

Ég ætla bara að vona að ég geti staðið mig jafnvel í þessu veigamikla hlutverki og foreldrar mínir hafa gert. Því ef ég kemst með tærnar þar sem þau hafa hælana þá á þessi litla prinsessa svo sannarlega eftir að hafa það gott.


Þetta var nokkurn veginn hvernig ég upplifði þessa fæðingu, þá fyrstu, fyrir utan mína eigin, sem ég verð vitni að. Hún hafði vafalítið mikið áhrif á mig og verð ég væntanlega aldrei samur eftir þessa upplifun, vona ég bara að hún hafi gert mig að betri manni, betri pabba.

Litlan loksins fædd

25. maí 2008 klukkan 22:41
Þessi litla prinsessa fæddist klukkan 05:54 í morgun. Hún mældist 53 cm og 16,5 mörk. Móður og barni heilsast vel og pabbinn er alveg í skýjunum með litlu prinsessuna sína :)


Segir Daníel Tryggvi sem.... er orðinn pabbi

Mæli með þessari

25. maí 2008 klukkan 01:09
Verð að segja að ég mæli svo sannarlega með þessari síðu http://contractionmaster.com/ hún er búin að gagnast mér ansi vel núna í kvöld.

Segir Daníel Tryggvi sem..... er væntanlega á leiðinni uppá fæðingardeild í nótt

Women drivers

23. maí 2008 klukkan 16:33
Ég verð vitni að þessu þegar að ég var á leiðinni heim úr hádegismat núna í dag. Ekki spyrja mig hvernig þessi kona fór að þessu.



Það sem meira er það þurfti að draga bílinn í burtu því hann var í óökuhæfu ástandi. Svona fólk á náttúrlega ekki að vera með bílpróf ;)


Segir Daníel Tryggvi sem.... er ánægður með að Ísland hafi komist áfram í Eurovision

Champions of Europe again

22. maí 2008 klukkan 00:02



Alveg ótrúlegt

21. maí 2008 klukkan 14:04


Þessa skjámynd tók ég af síðunni minni í gær, rétt fyrir klukkan 10 um morguninn. Þarna sést bersýnilega að það voru komnar yfir 400 heimsóknir á síðuna en á sama tíma ekki eitt einasta komment. Þær enduðu, eins og ég sagði í færslunni hér á undan með því að fara uppí næstum 700. Núna þegar þetta er skrifað þá eru komnar 157 heimsóknir og einungis 2 komment og þar af er eitt frá mér en hitt frá Helgu.

Ég ætla alls ekki að fara að væla yfir þessu kommentaleysi eða skipa fólki að fara að kommenta. Mér finnst þetta einungis skondin tilhugsun að það sé fleiri hunduðir manna að kíkja hingað inn og ég hef ekki hugmynd um hvaða fólk það er sem hefur svona gríðarlegan áhuga á ófæddu barni mínu, því ég reikna fastlega með því að það sé ástæðan fyrir þessari skyndilegu aukningu í heimsóknum á síðuna.


Segir Daníel Tryggvi sem....vonar að Man Utd vinni í kvöld

Ekki gerðist það

21. maí 2008 klukkan 09:56
 Sú stutta ætlar greinilega að láta að bíða eftir sér því ekki kom hún í gær eins og spáð hafði verið. Það virðist því stefna í það að hún ætli að stríða pabba sínum og á ég fastlega von á því að Helga fari á fullt um kl 18:30 í kvöld eða þegar að útsendingin frá úrslitaleiknum í Meistaradeildinni hefst og að litla ljúfan góða verði kominn í heiminn svona um 10 leitið eða um það leiti þegar leiknum líkur.

Annað mál á dagskrá sem mig langaði aðeins að ræða um er heimsóknafjöldinn á þessa síðu sem að hefur farið uppú öllu valdi núna síðustu daga og mældust hátt í 700 heimsóknir í gær. Svo sem ekkert út á það að setja að 700 manns hafa svona gríðarlegan áhuga á skrifum mínum en það sem mér finnst alltaf svo stórmerkilegt er þegar að enginn nema kannski systir mín kommentar til að láta vita hver það var sem var að kíkja hingað inn. Ég hef áður skrifað svona færslu um kommentaleysi á þessar síðu, það hafði í för með sér að ég fékk einhver 4 komment eða svo á þá færslu en svo ekki söguna meir. Nú er spurning hvort að einhverjir taki sig til og kommenti á þessa færslu af því að ég er aftur farinn að væla yfir þessu ;)

En eins og ég sagði áðan þá kom litlan ekki í heiminn í gær og af þeim sökum þá ákvaðum við Helga að gera okkur smá dagamun þar sem að það mun kannski ekki vera hægt aftur fyrr en eftir nokkra mánuði.

Við ákváðum að skella okkur í smá sund og fórum á Hótel Loftleiðir og kíktum í pottinn þar (verð að segja að sundlaugin þar er orðinn nokkuð sjúskuð og ekki nóg með það heldur kostar heilar 600 kr ofan í þessa úr sérgengnu sundlaug, að vísu verður að viðurkenna að þar sem að það er hægt að panta sér kaldan bjór ofan í pottinn þá hefur þessi laug talsvert fram yfir aðrar) og eftir það fórum við á Pizza Hut þar sem að við ætluðum að panta okkur "kjúklingadraum" eins og við gerum yfirleitt þegar að við förum á Pizza Hut en Helgu til mikillar óhamingju þá var sá réttur ekki til. Þjónustustúlkan sem var að afgreiða okkur sá samt hvað við vorum sorgmædd yfir þessu og ákvað bara að búa til smá rétt handa okkur og rukka okkur bara það sama og kjúklingadraumurinn kostaði. Sá réttur innihélt 4 stk af kókoskjúkling (sem er það besta í "kjúklingadraumnum") slatta af kjúklingavængjum, kartöflubáta og 4-5 stk af mozzarella ostastöngum. Get alveg sagt ykkur það að þetta er töluvert meira magn heldur en maður fær þegar pantaður er "Kjúklingadraumur". Spurning um að reyna bara að panta þennan rétt alltaf þegar að við förum þarna :)

Eftir þessa yndislegu máltíð þá skelltum við okkur í bíó á myndina What Happens in Vegas í Lúxussalnum í Smárabíó og var hún bara hin ágætasta skemmtun. Þannig að allt í allt var þetta bara hinn prýðilegasti dagur en nú tekur aftur við bið eftir þeirri stutta og vonandi að hún hrekkji pabba sinn ekki of mikið.

Í lokin ætla ég svo að fara yfir nokkra dagsetningar sem að við viljum að hún fæðist á og af hverju.

21. maí
Af því að Helga á afmæli 21. október og þá myndu þær mæðgur báðar eiga afmæli 21.


23. maí

Af því að Björgvin Júlíus á afmæli 3. janúar, Bjarki Flóvent á afmæli 13. apríl og ef hún fæðist 23. maí þá væri þetta 3, 13 og 23


24. maí

Af því að þá á Sigrún systir afmæli og þá er Eurovision en Silja Sóley fæddist líka þegar að Eurovision var


26. maí

Af því að ég á afmæli 26. ágúst og þá myndum við feðginin bæði eiga afmæli 26.



Þar með hafið þið það.


Segir Daníel Tryggvi sem.... tók afganginn frá Pizza Hut með sér sem nesti í vinnuna

Gerist það.....

20. maí 2008 klukkan 09:48
 Eins og einhverjir hafa eflast tekið eftir þá á litlan okkar Helgu að fæðast í dag, eða það sögðu læknarnir fyrir svona u.þ.b. 9 mánuðum síðan. Það virðist þó ekki vera mikið fararsnið á þeirri litlu því að hún virðist bara hafa það voðalega notalegt þarna inni eins og ég hafði það nú notalegt fyrir tæpum 28 árum síðan. Ég hafði það meira að segja svo notalegt að ég kom tæpum 3 vikum eftir settan fæðingardag. Slíkt er víst ólöglegt og ómannúðlegt í dag og því konur settar af stað ef þær eru komnar 2 vikur fram yfir.

Helga er sannfærð um að sú stutta sé jafn þrjósk og pabbi sinn og hreinlega neiti að koma þangað til að það verður hreinlega að fara inn og ná í hana. En Helga er að fara að hitta ljósmóðurina á eftir og ætlar hún víst að hreyfa eitthvað við belgnum og það á að geta framkallað fæðingu í sumum tilvika og þar sem að Helga er víst orðin "hagstæð" (þessi orð eru öll voðalega ný fyrir mér) þá eiga líkurnar á því að þessi belghreyfing skili sér í fæðingu að aukast töluvert.

Því er bara ekkert eftir en að krossleggja alla fingurnar og vona að hún komi bara sem allra fyrst því að ef sú litla er eitthvað eins og pabbi sinn þá á hún að vita að hann er ekkert sérstaklega þolinmóður ;)


Segir Daníel Tryggvi sem.....keypti Stöð 2 Sport í gær til að geta horft á Grindavík - Fjölnir

Myndir frá helginni

19. maí 2008 klukkan 10:34
 Ég og Kiddi kíktum í smá bjór til hans Níelsar núna á laugdaginn, fengum að skoða nýju íbúðina og svona. Verð að segja það að þetta er hin glæsilegasta íbúð þó svo að það sé svolítið tómlegt sumstaðar ;)

Eftir að hafa skoðað íbúðin og myndað hana í bak og fyrir þá skelltum við strákarnir okkur niður á Sportbarinn í Hverfisgötunni. Hann er að vísu lokaður eins og er en þar sem að Níels og Co. keyptu reksturinn fyrir nokkru síðan þá var drengurinn að sjálfsögðu með lykla og opnaði staðinn bara fyrir okkur. Við eyddum svo kvöldinu bara í að spila pool, skjóta smá pílu og síðast en alls ekki síst í fooseball og þar var ég svo sannarlega á heimavelli og hreinlega slátraði þeim félögum trekk í trekk.

Þetta var alveg einstaklega skemmtilegt kvöld þó svo að það hafi verið í styttri kanntinum þar sem að Níels var orðinn slæmur í maganum og fór hann því ekki með okkur niður í bæ. Við Kiddi röltum niður á Hlölla og ætluðum bara að fara að koma okkur heim á leið en þá sá Kiddi að sér og ákvað að nýta tækifærið og fara á almennilegt fyllerí. En þar sem að ég er ábyrgur ungur maður og með kasóléttakonu heima þá lét ég bara staðar numið og tók næsta leigubíl heim. Var ég því kominn heim rétt um 2:30

Sé svo sannarlega ekki eftir því í dag því að ég varð ekki var við eina einustu þynnku og var bara ansi hress allan gærdaginn.

En eins og áður sagði þá tók ég einhvern slatta af myndum og þið getið kíkt á þær HÉR


Segir Daníel Tryggvi sem.... er að spá hvort hann eigi að fara á Grindavík - Fjölnir í kvöld

Ég hata vörubílstjóra

16. maí 2008 klukkan 12:56
 Djöfull er ég farinn að hata þessa djöfulsins vörubílstjóra....

Þeir eru farnir að mæta hérna á nánast hverjum einasta degi og þeyta flauturnar fyrir utan Alþingi og þar sem að ég er að vinna alveg í næsta húsi þá verð ég líka fyrir ónæði af þessum völdum þó svo að ég hafi ekkert til sakar unnið.

Ég legg bara til að þessi bévítasn vörubílstjórar finni sér einhverjar aðra leið til að mótmæla áður en þeir fá allan almenning á móti sér. Það er nú einu sinni það sem þeir ættu síst að vilja því þeir fá aldrei neinu framgengt nema vera með fjöldan með sér í liði.


Segir Daníel Tryggvi sem.... er að spá í að fara að mæta með eyrnartappa í vinnuna

Meistarabragur

16. maí 2008 klukkan 09:38
 Það virðist allt stefna í það að Fjölnismenn ætli bara að blanda sér í meistarabaráttuna á sínu fyrsta ári í efstu deild. Þeir gerðu sér lítið fyrir og unnu góðan og sannfærandi sigur á KR-ingum í gærkvöldi þegar KR-ingarnir komu í heimsókn uppí Grafarvoginn. Þetta er víst í fyrsta skipti síðan 1977 sem að lið sem kemur uppí efstu deild vinnur tvo fyrstu leikina sína.

Verð alveg að viðurkenna að maður átti nú ekki von á jafn glæsilegum sigri og þetta en þegar baráttan er fyrir hendi og menn leggja allt sitt í leikinn þá er ýmislegt hægt. Fjölnismenn sönnuðu það svo um munar í gækvöldi. Að vísu er rétt að minnast á það að KR-ingar komust yfir í leiknum með marki frá hinum eitraða framherja Guðjóni Baldvinssyni en Fjölnismenn létu það ekki slá sig útaf laginu heldur jöfnuðu eftir einungis rúmar 5 mínútur og uppskáru svo mark alveg undir lok leiks.

KR-ingar voru í að vísu búnir að eiga nokkur dauðfæri og skall knötturinn meðal annars tvisvar í tréverki Fjölnismanna en hér eins og oftar sannast hið margkveðna að ef menn nýta ekki færin sín þá geta þeir alltaf fengið það í bakið.

Nú er bara um að gera og setja stefnuna á toppinn enda eru Fjölnismenn bara í 3. sæti á markatölu og því ekki um neitt annað að ræða en að setja bara í fluggírinn og halda áfram á sömu braut.


Segir Daníel Tryggvi sem... óskar Óla Stefán og félögum í Fjölni innilega til hamingju með magnaðan sigur í gærkvöldi

Heitasta gellan í dag

15. maí 2008 klukkan 11:24
Þetta er víst heitasta gellan í dag samkvæmt Maxim karlatímaritinu



Hún heitir víst Marisa Miller og hef helst unnið það sér til frægðar að hafa verið forsíðu módel framan á Sports Illustrated.

Vissulega er þetta fönguleg stúlka en hvort að hún sé endilega sú allra heitasta læt ég ykkur um að dæma.

Samt er alveg víst að hún er töluvert myndarlegri heldur en sú sem var síðast í efsta sæti en það var nefnilega vandræðagemsinn hún Lindsey Lohan.


Segir Daníel Tryggvi sem.... er viss um að dóttir sín verður myndarlegri heldur en báðar þessar konur til samans

Fótbolti og aftur fótbolti...

15. maí 2008 klukkan 09:42
 Það virðist bara allt snúast um fótbolta þessa dagana, sem er ansi merkilegt í ljósi þess að ég er víst að fara að eignast frumburðinn minn núna á allra næstu dögum :)

En allavegana þá er Landsbanka deildin víst komin af stað og fór ég á minn fyrsta leik núna í gær þegar að við familían (ég, Helga, Bjarki Flóvent, Björgvin Júlíus, Harpa systir hennar Helgu og María mamma hennar Helgu) skelltum okkur á Valur - Grindavík niður á Laugardalsvelli.

Get því miður ekki sagt að þetta hafi verið besti knattspyrnuleikur sem ég hef séð um ævina, Grinvíkingarnir vældu hreinlega of mikið til þess og svo ég tali nú ekki um þessar 40 aukaspyrnur og 10 rangstöður sem dæmdar voru í leiknum. Sökum þessa þá komst aldrei neitt flæði í leikinn og lá við að maður heyri meira öskrað á dómarann frekar en hvattningarorð í garð sinna manna frá stuðningsmönnum liðanna.

Leikurinn endaði þó að lokum og voru það Valsmenn sem fóru með sigur af hólmi 3-0 en það er nokkuð ljóst að ef Valsmenn ætla sér að spila svona í sumar þá komast þeir ekki langt gegn sterkari liðum en Grindavík. Einnig er það alveg morgunljós að með svona spilamennsku þá verða Grindvíkingar í bölvuðu basli í allt sumar. Spurning hvort að þessi Gabon/Frakki geti breytt þar einhverju um.

Þó má benda á smá gleðipunkt í þessu öllu saman (kannski ekkert mikill gleðiðpunktur fyrir hvorugt liðið en mér finnst það gleðipunktur engu að síður) og það er að Grindvíkingar söknuðu alveg greinilega fyrrverandi fyrirliða síns, sem sat uppí stúku og horfði á leikinn, hans Óla Stefáns Flóventssonar. En svona fer þegar að menn sína mönnum ekki tilskylda virðingu og koma fram við þá af drengsskap og heiðarleika þá verða menn oft að bíta í það súra epli að glata svona klassa leikmönnum eins og Óla

En eins og segir í kvæðinu, eins manns dauði er annars brauð og það á svo sannarlega við um þá Fjölnismenn því að þeir eru með Óla í vörninni og hafa ekki fengið á sig mark á meðan Grindavík eru ekki með Óla og þeir hafa fengið á sig 6 mörk. Need I say more

Nú verður bara spennandi að fylgjast með því í kvöld hvort að Fjölnismenn nái að halda aftur af KR-ingunum sem fóru illa með Grindavík í fyrstu umferðinni. En þessi lið mætast einmitt á Fjölnisvellinum í kvöld kl 19:15. Held að það sé alveg málið að mæta á fyrsta heimaleik þeirra Fjölnismanna í efstu deild. Án efa verður þar alveg helljarinnar húllumhæ.

Sjáumt þar!


Segir Daníel Tryggvi sem....vantar þunnan sumarfrakka

Champione...champione ole ole ole

12. maí 2008 klukkan 23:10




Hvílík byrjun

10. maí 2008 klukkan 20:32
 Það er nokkuð greinilegt að leikmenn Landsbankadeildarinnar eru heldur betur búnir að reima á sig skotskóna fyrir þessa leiktíð. Fyrsta umferð Landsbankadeildarinnar fór fram núna í dag og voru skoruð hvorki fleiri né færri en 24 mörk í 6 leikjum, sem þýðir 4 mörk að meðaltali í leik sem er alls ekki slæmt.

Ef mótið heldur áfram svona þá er nokkuð ljóst að þetta verður LANG LANG skemmtilegasta Íslandsmótið í langan tíma.

Það að Valur tapi 5-3 og að nýliðar Fjölnis vinni 0-3 úti sigur á Þrótturum ásamt náttúlega því að Safamýrarstórveldið Fram byrji líka á 0-3 útisigri virðist benda til þess að þetta verði alveg hreint glimrandi knattspyrnusumar. Því ekki má gleyma því að Evrópumót landsliða er líka á dagskrá í sumar þannig að við knattspyrnuáhuga menn getum svo sannarlega glaðst yfir því að sumarið sé komið.

Segir Daníel Tryggvi sem.... er spenntur fyrir sumrinu

Fyndið stöff

08. maí 2008 klukkan 13:15
Helga mín ef þér fannst myndbandið hjá bróður þínum fyndið þá fannst mér þetta ekkert síðra :)

Asskoti grátbroslegt




Þetta er að vísu stolið af Skrolla síðunni en hvað um það


Segir Daníel Tryggvi sem... er að fara að sækja systur sína út á flugvöll á eftir

Megrunarlausi dagurinn var í gær

07. maí 2008 klukkan 16:27
Eins og þið eflaust flest vitið þá var Megrunarlausi dagurinn (International No Diet Day) í gær og vænti ég þess að margir hafi haldið hann hátíðlegan. Í tilefni af honum var dreift útum alla borg mjög svo skemmtilegum póstkortum sem á var að finna einstaklega skemmtilegan og fróðlegan boðskap sem að við ættum öll að geta lært af.

Á einu af þessum kortum er að finna 10 heilræði sem að ég ætla að láta fljóta hérna með og vonandi getum við reynt að nýta okkur þau á lífsleiðinni. Þau eru eftirfarandi:

1. Ekki fá samviskubit yfir því sem þú borðar.


2. Hrósaðu einhverjum fyrir eiginleika sem kemur útliti ekkert við.


3. Gefðu föt sem passa ekki á þig í fatasöfnun.


4. Hættu að bera þig saman við aðra - þú ert einstök/einstakur.


5. Gerðu eitthvað sem þú hefur verið að fresta þangað til þú grennist.


6. Hentu blöðum sem innihalda útlitsdýrkun eða megrunarboðskap.


7. Ekki segja neitt neikvætt um líkama þinn eða annarra.


8. Njóttu þess að hreyfa þig án þess að hugsa um fitubrennslu.


9. Hlustaðu á líkama þinn. Borðaðu þegar þú ert svangur/svöng og hættu þegar þú ert saddur/södd.


10. Hugsaðu um hvað neikvæðar hugsanir um líkama þinn hafa tekið mikinn tíma frá þér. Í dag er tækifæri til að hefja nýtt líf þar sem þú elskar líkama þinn eins og hann er.


 

Hérna er svo heimsíða Megrunarlausa dagsins ef þið viljið kíkja á hana, fullt af fróðlegri lesningu :)

www.likamsvirding.blogspot.com


 

Segir Daníel Tryggvi sem... fór út að borða í tilefni Megrunarlausa dagsins

Stolið barnahjól- HJÓLIÐ FUNDIÐ

05. maí 2008 klukkan 15:07


Hverskonar óþverralíður er það sem að stelur hjóli af 7 ára gömlu barni ???

Hjólinu hans Bjarka Flóvents, sem er by the way 7 ára gamall, var stolið núna um helgina fyrir utan heimili okkar í Skólatúni 4 úti á Álftanesi. Hann fékk hjólið í 7 ára afmælisgjöf þann 13. apríl síðastliðinn þannig að hann er ekki búinn að eiga hjólið í nema nokkrar vikur þegar að því er rænt.

Ég verð bara að segja að ég á ekki til orð yfir svona löguðu og það í hverfi sem á að teljast nú nokkuð gott og heilnæmt.

Ég skora á þann eða þau sem tóku hjólið að skila því hið fyrsta því að svona lagað gerir maður bara ekki.

Ef einhver hefur orðið var við hjólið, það er alveg eins og þetta á myndinni, þá endilega hafið samband við mig, Daníel, í síma 617-8782 eða Helgu í síma 616-1855.

Megrunarlausi dagurinn á morgun

05. maí 2008 klukkan 10:18
 Á morgun, 6. maí, er megrunarlausi dagurinn. Þann dag er ætlast til þess að fólk sé ekki í megrun heldur einblýni frekar á heilbrigt líferni eða eins og skáldið sagði, allt er gott í hófi.

Systir mín, hún Sigrún Daníelsdóttir, hefur borið hitann og þungan af þessum degi sem hefur að mér skilst verið haldinn tvisvar sinnum áður hér á landi og mun þetta þá vera í þriðja skiptið sem hann verður haldinn. Hún systir mín hefur nú ekki verið þekkt fyrir að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur og gerir hún það heldur ekki í þetta skiptið. Í fyrra gaf hún út ansi veglegt blað samfara þessum degi og í ár verður dreyft útum alla borg og jafnvel víðar, stórglæsilegum póstkortum sem ætluð eru til að vekja eftirtekt fólks og fá það aðeins til að hugsa hvað sé í raun heilbrigt og hvað ekki.

Ég verð alveg að viðurkenna að fyrst þegar að systir mín sagði mér frá þessum degi fyrir nokkrum árum síðan þá fannst mér þetta hljóma hálf kjánalega, en núna eftir að hafa fræðst um þetta meira þá finnst mér þetta alveg stósniðug og í raun mjög svo lógísk pæling.

Það að samfélagið brennimerki alla þá sem eru feitir sem óheilbrigða, lata og einskisverða einstaklinga er bara engan veginn ásættanlegt. Fyrir nokkrum árum eða öldum síðan var þetta einmitt öfugt þá voru það þeir sem voru vel í holdum sem þóttu heilbrigðastir (þó svo að það hafi ekkert alltaf verið raunin í gamla daga) en núna er það bara þannig að ef þú ert ekki tágrannur og með sixpack og ég veit ekki hvað og hvað þá ert þú bara sjálfkrafa stimplaður sem eitthvað óheilbrigður.

Ég sjálfur hef nú alltaf verið í þykkari kantinum nær allt mitt líf samt get ég ekki sagt að ég lifi eitthvað sérstaklega óheilbrigðu lífi, ekki misskilja mig ég veit alveg að ég gæti lifað heilbrigðara lífi, ég mætti til dæmis alveg hreyfa mig meira og borða meira grænmeti og svona. En samt er ég nokkuð viss um að ansi margir þarna úti myndu segja að ég væri mjög óheilbrigður og það er einmitt tilgangurinn með þessum degi, Megrunarlausa deginum, að fá þetta fólk til að líta aðeins í eigin barm og hætt að dæma alla bara eftir útlitinu.

Fólk er bara misjafnt, þannig hefur það allltaf verið og þannig mun það alltaf vera. Hvað segiði því um að við hættum bara þessum látum, fáum okkur eina kökusneið eða sellerí og förum að njóta lífsins hvernig svo sem við lítum út.



Segir Daníel Tryggvi sem.... er mjög stoltur af henni stóru systur sinni

Gusgus tilnefndir til verðlauna á Hlustendaverðlaunum FM957

02. maí 2008 klukkan 15:58
 Gus Gus eru sko heldur betur heitasta hljómsveitin í dag, þeir eða þau öllu að heldur eru tilnefnd til hvorki fleiri né færri verðlauna en 4 af þeim 8 flokkum sem veita á verðlaun í á Hlustendaverðlaunum FM 957 sem veitt verða nú um helgina. Þau eru tilnefnd m.a. sem "Besta hljómsveitin" og fyrir "Besta lagið".

Ég hvet því bara alla til þess að fara inná www.fm957.is og kjósa Gus Gus í öllum þeim flokkum sem þeir geta enda er þetta LANG besta hljómsveit landsins og þótt víðar væri leitað.

Segir Daníel Tryggvi sem.... er nú þegar búinn að kjósa nokkrum sinnum

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Á döfinni

Innskráningar kubbur

Leit