Auglýsing

Um mig

  • Nafn: Daníel Tryggvi Daníelsson
  • Netfang: daniel.tryggvi@gmail.com
  • Heimilisfang: Skólatún 4
  • Hjúskaparstaða: Í sambandi

Knowing

30. mars 2009 klukkan 12:28
Ég verð bara að fá að segja ykkur frá bíóferðinni sem ég fór í gær. Sammi sendi mér sms og spurði hvort ég væri ekki til í bíó. Knowing kl 22:30 í Kringlubíó, verð alveg að viðurkenna að ég var til í að sjá hana enda búinn að sjá einhverja trailera fyrir hana og hún lofaði góðu.

Get ekki sagt að ég hafi orðið fyrir vonbrigðum, myndin var alveg hrikalega spennandi, frábærar tæknibrellur og hélt myndin manni hreinlega í heljargreipum nær allan tímann.....þar að segja þangað til að koma að endinum :(

Í sannleika sagt þá fannst mér þetta bara með betri mynum sem ég hef séð í dágóðan tíma, fyrir utan svona síðustu 10-15 mínúturnar.

Hvernig í ósköpunum dettur mönnum í hug að gera svona endi. Ég vill svo sem ekki fara útí smáatriði ef einhver ykkar sem að lesa þetta viljið endilega fara og sjá þetta með eigin augum (þó svo að ég mæli eindregið frá því, 2 klst sem þið fáið ekki til baka af lífi ykkar).

Ég hef sjaldan gengið útaf kvikmynd með jafnmikil vonbrigði á herðum mínum eins og eftir að hafa séð þessa mynd. Ég sá einnig myndina Paul Blart: Mall Cop um helgina og get ég sagt ykkur að hún er í óskarverðlauna klassa hvað skemmtun varðar miðað við Knowing.


Segir Daníel Tryggvi sem.... sá dóttur sína taka 8 skef í gær 

Pælingar

23. mars 2009 klukkan 10:29
Datt í hug að nýta bara tímann hérna í frímínútum til þess að blogg aðeins, maður gerir víst allt of lítið af því þessa dagana. Fer einhvern veginn miklu meiri tími í það að hanga á þessi bévítans Facebook. Alveg ótrúlegt hvað það er fáránlega mikill tímaþjófur, eins og það er nú ekkert merkilegt þarna inni. Bara sífellt einhver svona add-on, verið að bjóða manni í þennan og hinn hópinn og allir að keppast um að vera með sem flesta vini. Veit það alveg að ég á sko enga 400 vini, kannski nærri lagi að þeir séu svona 40 í mesta lagi. En einhvern vegin þá bara addar maður öllu því fólki sem maður hefur nokkurn tíman hitt á lífsleiðinni alveg óháð því hvort maður eigi einhvern tíman eftir að tala við það.

Svona er þetta víst bara, ekkert sem hægt er að gera til að breyta því.

Annars er bara allt gott að frétta af okkur familíunni. Inga María er alveg við það að fara að ganga, er víst búin að sína öllum og þá meina ég öllum, nema pabba sínum,  að hún geti gengið. Dagný er svo víst á leiðinni heim núna eftir 12 daga þannig að það verða miklir fagnaðarfundir og ekki ólíkt að Inga María verði ansi mikið knúsuð þá daga sem hún verður á landinu

En núna er tíminn víst að hefjast þannig að ég verð að hætta.


Segir Daníel Tryggvi sem..... er aftur að fara að vinna í market research í kvöld 

Krista/Quest - Umsögn

11. mars 2009 klukkan 10:24
Krista/Quest
3. hæð, í norðurhluta Kringlunnar
S. 568-9977



Umsögn:
Það var núna á mánudaginn 9. mars sem að ég skellti mér í klippingu á stofuna Krista/Quest í Kringlunni. Verð samt að viðurkenna það strax svona í upphafi á þessari umsögn að ég hef farið á þessa stofu áður. Í það skipti var ég ekki að nenna að taka niður neina punkta þannig að ég varð að fara aftur til að geta skrifað þessa umsögn;).

Það byrjaði ansi vel hjá þeim á KQ þar sem að ég hringdi kl 12:30 til að panta tíma og fékk tíma kl 13:00. Eins og ég hef oft tekið fram áður þá er fátt sem að gleður mitt litla hjarta jafnmikið eins og að fá tíma í klippingu með svona skömmum fyrirvara. Þetta hentaði mér líka alveg einstaklega vel því að þennan hálftíma sem ég hafði áður en ég átti að mæta í klippinguna gat ég nýtt til að fá mér eitthvað að snæða, þannig að ég mætti saddur, sæll og glaður í stólinn hjá klipparanum.

Því miður þá tókst þeim hjá KQ ekki að viðhalda þessari ánægju hjá mér. Þau fóru svo sem alveg vel af stað þar sem að vel var tekið á móti mér, jakkinn minn tekinn og mér boðið að setjast bara beint í hárþvottinn. Eftir það var þetta ekki alveg nógu gott, vatnið var alveg í heitari kantinum ef það hefði verið örlítið heitara þá hefði maður bara getað brennt sig. Svo varð ég fyrir mjög svo miklum vonbrigðum með nuddið hjá þeim, það virkaði einhvern vegin meira af skildu frekar en ánægju eða það sem ég meina er að það var eins og þetta væri bara part of programmet en ekki að henn væri að reyna að láta kúnnanum líða vel. Í stuttu máli þá virkaði þetta einhvern vegin vélrænt.

Þegar svo í stólinn var komið þá fór þetta nú að ganga aðeins betur. Hann bauð mér kaffi eða vatn sem ég afþakkaði enda nýbúinn að éta mig pakksaddan af Chiken Alfredo Pasta frá þeim á Sbarro. Við áttum svo alveg prýðisgott spjall á meðan á klippingunni stóð. Ég er almennt ekkert voðalega spenntur fyrir því að vera mikið að spjalla meðan verið er að klippa mig, vill frekar bara reyna að njóta klippingarinnar. En það má líka vera af því að oft finnst mér þetta chitt chjatt vera svona frekar þröngvað, bara verið að reyna að spjalla um ekki neitt. Sumum reynist það betur aðfá menn til að tjá sig og má hann nú eiga það að þessi piltur var nokkuð seigur í því.

Eftir þetta líka ágætis spjall þá var ég bara nokkuð sáttur með útkomuna á klippingunni en því miður þá tókst þeim að eyðileggja þessa tilfinningu með því að gjörsamlega stútfylla hálsmálið á mér með hárum. Mér leið eins og það hefði verið helt heilli fötu af rakvélablöðum ofan í hálsmálið á mér. Þetta er eitt af því sem að ég gjörsamlega þoli ekki við það að fara í klippingu, það að ég þurfi að fara heim til mín eftir að hafa farið í klippingu, skipta um föt og fara í sturtu finnst mér hreinlega ekki vera manni bjóðandi.

Sökum þessa þá varð ég fyrir nokkrum vonbrigðum með þessa upplifun mína af klippingu hjá þeim í Krista/Quest. Svo var það ekki til að bæta það að ég var rukkaður um 4.400 kr. fyrir það að láta fylla hálsmálið á mér með rakvélablöðum.


Plús (+)

  • Gat pantað tíma með skömmum fyrirvara
  • Fínt spjall við klipparann
  • Nóg af stæðum
     
Mínus (-)

  • Vatnið í hárþvottinum alltof heitt
  • Nuddið frekar lélegt, virkaði vélrænt
  • Hálsmálið fyllt af hárum (rakvélablöðum)

Einkunnagjöf: 2 stars: fair rating

Yfirlit yfir árið 2008

09. mars 2009 klukkan 11:26
Nú er víst komið að því að ég klári þetta blessaða áramótablogg sem ég var búinn að lofa fyrir löngu síðan. Helga hefur röflað mikið yfir því að ég sé ekki búinn að klára þetta þannig að nú er bara ekkert um neitt að ræða en að kýla á þetta og klára þennan fjanda.

Janúar:
Árið hófst á mjög svo skemmtilegan máta, ég og Helga vorum heima hjá foreldrum mínum yfir áramótin og áttum þar alveg yndislegan tíma með mömmu, pabba, Dagnýju og ömmu. Þessi tími átti eftir að reynast enn dýrmætari fyrir þær sakir að hún amma mín féll frá skömmu síðar, guð blessi minningu hennar. En þrátt fyrir svona sorgartíma þá var líka margt gott og jákvætt í þessum mánuði. Þar ber helst að nefna að ég og Helga fórum með strákana til London, höfðum gefið þeim þessa ferð í jólagjöf. Algjörlega ógleymanleg ferð :). Annað merkilegt sem gerðist er að Heath Ledger lést í mánuðinum og borgarstjórnin féll enn einu sinni.

Febrúar:
Það var nú ekki mikið sem að gerðist í febrúar enda stuttur mánuður og bara skammdegisþunglyndið sem að fólk nennir að hugsa um. En það fá sem gerðist var að Vörusjá bauð mér á ráðstefnuna RIMC á Hótel Nordica. Mjög svo skemmtilegt og fræðandi. Einnig bauð ég henni Helgu út að borða á Valentínusardaginn á Geysir Bistro, vorum svo leist út þaðan með gjöfum og blómum :). Helga sannað það að Valentínusardagurinn er ekkert bara fyrir konurnar þvi að hún kom til mín í vinnuna og við kíktum út að borða í hádeginu, ekki nóg með að hún hafi borgað heldur gaf hún mér líka pakka, glæsilega borvél handa manninum sínum ;). Ég var víst í einhverjum mjög miklu nostalgíukasti þarna í febrúar, var mikið að skoða gamlar myndir af sjálfum mér og foreldrum mínum. Skírist kannski af því að það var farið að styttast í að ég yrði foreldri sjálfur ;)

Mars:
Eitt skemmtilegt gerðum við í mars. Við fórum með strákana niður að tjörn að gefa öndunum. Þetta er í sjálfu sér ekkert svo merkilegt en það merkilega er að í gær, daginn áður en ég skrifa þessa færslu þá fórum ég og Helga aftur niður að tjörn að gefa öndunum. Greinilega eitthvað sem segir okkur að fara að gefa öndunum alltaf í mars :). Við Helga skelltum okkur líka í 3-D sónar þar sem að við fengum að sjá hana Ingu Maríu (sem var að vísu ekkji búin að fá það nafn þá) í þrívídd, fengum meira að segja smá video af henni, alveg ótrúlega gaman. Ég skellti mér líka í óvænta heimsókn til Dagnýjar útí Köben. Kom henni algjörlega á óvart, eyddum svo nokkrum dögum saman að versla, fara út að borða og bara hafa það gaman. Um miðjan mánuðinn fékk ég svo úraboxið mitt sem ég er mjög stoltur af og ánægður með. Það er heldur betur mikið sem gerðist þennan mánuðinn, því að þegar ég kom heim frá Köben þá tjáði Helga mér að við værum að fara að flytja saman í nýja íbúð í Skólatúni 4 (úr Skólatúni 6). Undir lok mánaðarins komu svo páskarnir og voru strákarnir hjá okkur Helgu og gistum við á Sogaveginum og leituðum að öllum páskaeggjunum. Heilt á litið alveg ótrúlega viðburðaríkur mánuður :)

Apríl:
Heldur betur hægt að segja að apríl hafi algjörlega tekið við þar sem að mars hætti, því strax í byrjun apríl þá fluttum við Helga og strákarnir saman yfir í Skólatún 4. Ég hóf sem sagt sambúð og futti að heima allt bara í einu, kviss bamm búmm.... en eftir það fór lífið nú aðeins að róast. Við buðum að vísu mömmu minni og pabba í mat svona til að þakka þeim fyrir aðstoðina við fluttningana en þess fyrir utan þá var apríl nú bara nokkið rólegur mánuður. Að því fráskyldu að Bjarki Flóvent átti náttúrlega afmæli 13. Apríl og varð sá stutti 7 ára gamall :)

Maí:
Það er alveg klárt að þessi mánuður stendur uppúr á þessi merkilega ári. Það var nefnilega í maí sem að United vann ensku deildina og meistaradeildina...... hehe nei ég er nú bara aðeins að grínast. Klárlega stendur það uppúr að litla prinsessan leit dagsins ljós þann 25. Maí. Alveg ótrúlegt hvað svona lítill hlutur getur breytt lífi manns á vegi sem maður hefði aldrei getað látið sér detta í hug. Það tekur því í raun ekkert að minnast á neitt annað í þessum mánuðu því að það fölnar allt í samanburði við þennan merkisviðburð.

Júní:
Ein lítil stúlka hlaut nafn í þessum mánuði (örugglega verið fleiri en ég ætla bara að minnast á eina) en það var hún Inga María Daníelsdóttir Norðdahl. Ekki nóg með að litla prinsessan hafi fengið svona fallegt nafn heldur fékk pabbi hennar líka fallegt grill í sama mánuði ;) Mánuðurinn endaði svo á því að ég skellti mér með strákana á Blöndós þar sem að Bjarki Flóvent var að keppa, við vorum búin að leigja svaka fínan bústað og var þetta alveg einstaklega skemmtileg ferð. Eina leiðinlegt var að Helga og Inga María komust ekki með okkur þar sem að Helga var orðin mjög veik eftir fæðinguna. Það átti heldur betur eftir að draga dilka á eftir sér.

Júlí:
Ég hóf mánuðinn á því að setja heimsmet, var einn af þeim sem að download-uðu nýjustu útgáfunni af Mozilla Firefox og settum þar með heimsmet í download-i á einu forriti á einum degi. Fékk meira að segja viðurkenningarskjal og allt saman ;). Inga María komst svo líka í blöðin þennan mánuðinn, við helga sendum nefnilega mynd af henni í tilkynningu yfir nýbakað foreldra í Mogganum :) Við eyddum svo bara mánuðinum í notalegheitum, buðum fólki í innfluttningspartý og eyddum smá tíma uppí bústað svona til að reyna að njóta sumarsins aðeins :)

Ágúst:
Ég og Helga hófum mánuðinn á því að fara uppí bústað til mömmu og pabba um verslunarmannahelgina. Þar var mikið borðað og sungið og horfðum á pabba kveikja í brennunni, alltaf gaman af góðum brennum. Við buðum svo frændum og frænkum hennar Helgu, öðru nafni Dönunum, í mat til okkar um miðjan mánuðinn. Merkilegt hvað við vorum dugleg að bjóða fólki til okkar í mat. Fátt annað markvert gerðist í ágúst fyrir utan það að ég átti afmæli og varð 28 ára og Ísland vann silfur á ólympíuleikunum. Gerist þetta tvennt ekki á hverju ári hvort eð er ;)

September:
Við skelltum okkur í þrítugs afmæli hjá Ingu Mæju vinkonu hennar Helgu alla leið útí Grindavík. Aldrei áður keyrt svona langt til að fara í afmæli. Verð að viðurkenna að þar sem að ég bloggaði svo lítið í þessum mánuði fyrir ári síðan að þá veit ég ekkert hvað gerðist. Ég var bara í vinnunni og þetta venjulega. Eitt gerðist þó og það er að brotist var inn í bílinn hjá mér. Vaknaði einn morguninn og þá var búið að dúndra risastóru grjóti í gegnum farþegarúðuna að framan. Einstaklega leiðinlegt að vakna og koma að bílnum sínum í svona ástandi.

Október:
Það var í þessum mánuði sem að allt byrjaði að fara til fjandans. Allt bankakerfið á Íslandi hrundi eins og spilaborg, já og reyndar víðar um heiminn. Skrítið að vera að skrifa þetta núna í dag þar sem að enn einn íslenski bankinn var að hrynja einmitt í dag. En það voru nú svo sem jákvæðir punktar í þessu öllu, ber þar kannski helst að nefna að ég eignaðist minn fyrsta jeppa. Reikna með að þetta hafi bara verið sá fyrsti af mörgum sem maður eigi eftir að eignast yfir ævina. Ekki nóg með að ég hafi eiginast jeppa, sem er mun hentugri fyrir mann með 5 manna fjölskyldu heldur tókst mér líka að losna við bílinn minn og skemmtilega myntkörfulánið sem var á honum, ekki slæmt það. Það var einmitt líka í október sem að hún mamma mín varð sextug og var ég búinn að vera að gæla við gjöf handa henni nokkurn tíma. Lét svo verða af því og fékk ekki ómerkari einstaklinga með mér í lið en hana Nadiu úr Innlit/útlit. Ég fékk nefnilega þá hugmynd að breyta gamla herberginu mínu í listastúdíó fyrir hana mömmu mína. Innlit/útlit tók þetta svo upp og notaði í þættinum. Get alveg sagt að þetta kom mikið á óvart og vakti mikla lukku og kátínu. Helga mín varð svo þrítug í lok mánaðarins þannig að það var heldur betur mikið um stórafmæli í október. Í tilefni af afmælinu hennar þá bauð ég henni út á land, fórum á hótel hvolsvöll og gistum þar og höfðum það voðalega kósí. Alltaf gott að komast aðeins frá og fá frí frá þessum dásamlegu börnum okkar, aðeins að hlaða batteríin.

Nóvember:
Maður var víst í frekar miklu „fríi" þennan mánuðinn þannig að það kom sér vel að haft var samband við mig um að taka upp auglýsingu uppí bústað. Hafði ég því alveg tíma til að sjáum það og fá vel borgað fyrir. Við Helga buðum enn einu sinni fólki uppí bústað að borða með okkur, Óli og Guðrún urðu fyrir valinu þetta skiptið og daginn eftir þá bauð ég Óla og Patta að koma mér mér, BJ og BF í smá fjallgöngu og enda svo í pottinum. Alveg einstaklega skemmtilegur dagur. Ég bauð svo strákunum úr V1 heim í Skólatúnið um miðjan mánuðinn, alltaf gaman að hitta þessa menn og við plönuðum að taka svaka hitting næsta sumar. Hlakka mikið til.

Desember:
Við skelltum okkur á jólaball hjá Lions með pabba og mömmu, annað árið í röð sem að við förum með þeim á þetta jólball. Þetta var ekki eina veislan sem að við fórum í því að mamma hennar Helgu bauð okkur, Hörpu, Óla og Guðrúnu með sér á Rauðará á jólahlaðborð. Aldeilsi að það var dekstrað við mann þarna um jólin. Árið endaði svo á viðeigandi hátt eða með miklum þeytingi. Við fórum í áramótagraut til mömmu og pabba á Sogaveginn, fórum svo heima að gera okkur sæt og fín til að mæta í mat til tengdó í Garðabænum, eftir það var brunað aftur út á Álftanes á brennu svo aftur í Garðabæinn að ná í IM svo á Sogaveginnn þar sem að dessertinn var borðaður og horft á skaupið. Skutum svo upp nokkrum rakettum og enduðum árið með því að fara heim á Áltanes og sofnuðum saman á heimilinu okkar :)

Heilt á litið þá var þetta ár ansi viðburðar ríkt og fullt af stórskemmtilegum viðburðum og alveg hreinar línur að þetta ár mun ekki gleymast í náinni framtíð.
Takk kærlega fyrir mig
 

Segir Daníel Tryggvi sem..... dró það ansi lengi að koma með þetta áramótablogg

Nýjar myndir

02. mars 2009 klukkan 11:18
Ég var að enda við að setja inn nýjar myndir frá því að við familían fórum uppí bústað. Strákarnir voru í vetrarfríi þannig að við skelltum okkur bara uppí bústað á miðvikudegi og komum aftur á föstudeginum. Mjög svo skemmtileg ferð þrátt fyrir það að við skyldum ekki ná að komast í pottinn þó svo að við skildum eyða 2 sólarhringum í að koma honum í gang.


Segir Daníel Tryggvi sem.... er ekki búinn að vera alveg nógu duglegur að blogga 

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Á döfinni

Innskráningar kubbur

Leit